Kvartmílan > Keppnishald / Úrslit og Reglur
Tímar úr keppni 8. júlí og æfingu 7. júlí :)
Valli Djöfull:
by the way er ekkert mál að senda mér PM eða skrifa hér ef menn vilja fá sent skjal úr æfingu eða keppni með eingöngu sínum tímum.. tekur mig ekki nema nokkrar sekúndur að útbúa það fyrir hvern og einn :wink:
Það kæmi einhvernvegin svona út.. (þetta eru mínir tímar af síðustu æfingu t.d.)
Prufa
Kristján Skjóldal:
sé ekki tima of 1 :!:
Valli Djöfull:
--- Quote from: "Kristján" ---sé ekki tima of 1 :!:
--- End quote ---
jahh.. ég sé þá :) t.d. neðarlega á bls 4... svona 6. síðasta rönn á blaðsíðunni :) þar er OF1 á móti OF5 :)
Þeir kepptu 3x því það varð 1-1 hjá þeim.. svo tóku þeir báðir æfingar ef ég man rétt...:)
OF1 er á bls 2, bls 3, bls 4 og 2x á bls 5 :)
Nóni:
Valli þú ert maðurinn, Kvartmíluklúbburinn datt svo sannarlega í lukkupottinn þegar þú ákvaðst að ganga til liðs við hann.
En frábærir tímar litu dagsins ljós í dag sýnist mér, Gunni fór á 13.15 á 104 mílum á Golfinum, Alli fór 13.89 á 98 mílum á Hondu Civic. Bjössi á 1000 súkku niður í 9.97 á 143,8 mílum sem er dem góður hraði.
Leifur getur varla talist sáttur með þennan dag yfir höfuð, kannski hefur hann lent í smurolíureyk frá einhverjum keppenda (hóst Stígur hóst) og fipast, flottur tími hjá Leif í tímatökum 9.1 á 147 mílum.
Stígur dró kanínu upp úr smurolíupotti og fór á 9.247 á 149 mílum, hvaðan kom þessi hraði og þessi tími Stígur? 136 best í tímatökum, fannstu power takkann eða bættirðu við bústi? Var skift um olíu í millitíðinni :lol: eða hitnaði bara brautin og gripið varð meira? Eitthvað hefði verið sagt ef þetta hefði verið Subaru eða Honda. :lol: :lol:
Létt yfir mannskapnum á laugardagskveldi, (enginn Thule þó).
Maður dagsins að mínu mati er samt Elli á Primerunni sem gleymdi að skrá sig í keppni að eigin sögn, hefði getað átt möguleika á gulli í GT flokki á 11.85 á æfingu í gær :shock:
Kv. Nóni
Valli Djöfull:
Sagði einhver Thule? 8)
þetta er "skrifstofan" mín... þarna er kvartmílutölvan og fleira dótarí og ég að setja tímana inn á netið... sjáiði nokkuð hvað stendur í miðri mynd... Heldurðu að kjellinn hafi ekki verið að sötra Thule á meðan hann var að setja tímana á netið 8) hehe
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version