Author Topic: NEXEN - DRIFTER 2006  (Read 1860 times)

Offline bjornra

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 3
    • View Profile
NEXEN - DRIFTER 2006
« on: July 12, 2006, 15:14:24 »
Laugardaginn 29. júli verður NEXEN – DRIFTER keppnin haldin.  Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur (BÍKR) heldur keppnina í samstarfi við umboðsaðila NEXEN dekkja, MAX 1.

Keppnin verður haldin í Reykjavík en ekki verður keppnisstaður nánar tilkynntur fyrr en viku fyrir keppni.  Keppnin mun hefjast kl. 16.00 og gert er ráð fyrir að hún standi til kl. 19.  Brautin er um 500 metra löng með tveimur frjálsum svæðum og stórum drifthring.  Keyrðar verða tvær umferðir.

Skráning hefst 14. júlí á www.max1.is og er þátttökugjald kr. 7.000,-.  Skráning telst fullgild þegar keppandi hefur skráð sig á www.max1.is og greitt þátttökugjald til BÍKR á reikn. 130-26-796 kt: 571177-0569.  Skráning stendur til 24. júlí en þeir sem eru fyrstir til að skrá sig ganga fyrir ef takmarka þarf fjölda keppenda.
ATH!!!  Allir sem hafa skráð sig fá 40% afslátt af NEXEN sumardekkjum fram að keppni gegn framvísun skráningar og sönnun á greiðslu.  Hverjum keppanda er heimilt að hafa 2 aðstoðarmenn en vilji keppandi hafa fleirri aðstoðarmenn þurfa þeir að greiða aðgangseyri kr. 500,- eins og aðrir áhorfendur.

Dómarar verða þrír og má nálgast nánari upplýsingar um stigagjöf og aðrar reglur á www.max1.is.  Keppt verður í einum flokki og verða veitt vegleg verðlaun fyrir fyrstu 3 sætin.  Einnig verða veitt verðlaun fyrir mestu tilþrifin.

Vonandi mæta sem flestir til keppni og gera þetta enn eftirminnilegri keppni en í fyrra.

Nánari upplýsingar veitir undirritaður.

Fyrir hönd BÍKR,

Björn Ragnarsson
bjorn@bluelagoon.is
s: 660-8808