fróðlegt að lesa þetta en hvernig var það, voruð þið ekki búnir að festa kaup á nýrri hvítri Imprezu?
Við verðum á bláu 555 Imprezunni 2,0 STi8 í sumar (bætti við nokkrum myndum á heimasíðuna (
www.teamice.is)). Bílinn er enn óbreyttur í þyngd (1289 kg án ökumanns) frá fyrra ári, sem er í þyngra lagi ef miðað er við ýmsa aðra keppendur sem munu berjast á toppnum (1000 til 1100 kg), en það er fleira en þyngd og hestöfl sem ráða árangri. Það verður verkefni Gulla að slást við það.
Það eru hins vegar til áætlanir og möguleikar á léttari bíl, en tíminn mun leiða í ljós hvort og hvað það verður.
Bestu kveðjur,
Halldór Jónsson
Team ICE
www.teamice.is