Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar
1966 Mustang
Jón Þór Bjarnason:
Þetta eru 6000 pund sem þið getið svo reiknað t.d. hjá http://www.bmwkraftur.is/innflutningur/ og þar sem bíllinn er orðinn 40 ára fer hann í lægri tollaflokk. Ég hef verið að skoða marga ameríska bíla á ebay UK og þar eru þeir vanir að hafa stýrið hægra megin og er þetta eflaust innsláttarvilla + það að amerísku bílarnir eru í mörgum tilfellum ódýrari þar en í USA. Mér persónulega finnst þetta fallegur bíll og hef sent eigandanum mail um frekari upplýsingar, myndir og hvort hægt sé að skoða gripinn. P.S. veriði ekki alltaf svona svartsýnir þó svo að það sé ekki sól hjá okkur. 8) 8) 8)
firebird400:
Jú jú vissulega fallegur gripur
En ekki kaupa hann nema þú farir hreinlega út og sjáir hann, takir í spaðann á gaurnum og hafir bílinn með þér heim persónulega.
Það kostar sama sem ekkert að fljúga til London t.d. og lestarnar eru fínar :wink:
72 MACH 1:
Þetta eru SVIK og aftur SVIK. Hann gefur upp e - mail sem hann má ekki. Allir póstar eiga að fara í gegnum eBay. Þetta eru krimmar sem hafa komist yfir ID og PW hjá seljanda á eBay. Þeir nota hans eBay og biðja bjóðendur að senda sér póst á erimei11@hotmail.com til að eigandi eBay - sins sem þeir eru að misnota komist síður að því hvað er í gangi.
Contact me directly to my email adress : erimei11@hotmail.com
Það er áætlað að um 30 bílar séu sviknir á degi hverjum á eBay.
Farið varlega.
Einnig er vert að benda á það að eBay býður kaupvernd upp að $20,000.00 í USA. En þetta gildir bara fyrir þá sem eru skráðir með sitt eBay í USA.
Kveðja,
Eggert Kristjánsson.
Navigation
[0] Message Index
[*] Previous page
Go to full version