Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar
Afmælisgjöf ársins!!!!!
Gummari:
til hamingju með þetta
Bara Cool bilar 8)
Sigtryggur:
Sælir piltar og takk fyrir.
Eins og margir ykkar hafa heyrt, hefur það verið draumur minn í nokkur ár að eignast bíl af gerðinni Ford Fairlane 1966-67.Ekki fór þetta heldur fram hjá konunni minni eða nánustu vinum og ættingjum.Nú, þegar líða fór að því að karlinn yrði fertugur, ákvað Kata að ekki gæti ég verið bíllaus mikið lengur.Fékk hún í lið með sér Hálfdán Sig.og fleiri góða menn til að finna bíl.Einnig hafði hún samband við vini,fjölskyldu og ættingja og ja.. í stað 5 gasgrilla 8 veiðistanga o.s.fr. fékk ég í afmælisveislunni eitt stykki rauðann Ford Fairlane 1966,þ.e. myndir af bílnum , staðfestingu á því að hann væri ætlaður mér og að hann færi í skip 9.júní.
Allir veislugestir höfðu þá verið með í plottinu og jaaaaa.......nú er mér orða vant. :o :o :o :o :o
Elsku Kata....TAKK
Preza túrbó:
Til hamingju með daginn félagi :D og til hamingju með græjuna 8)
Kveðja:
Dóri G. :twisted: :twisted:
Kristján F:
Sæll Sigtryggur
Innilega til hamingju með árin 40.Þetta er með því flottara sem ég hef heyrt af með að koma fólki á óvart.
firebird400:
Til hamingju með daginn
Og djöfull áttu svala konu maður 8)
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version