Kvartmílan > Almennt Spjall
Breytingar á heimasíðu klúbbsins.
Einar K. Möller:
Kæru félagar og aðrir spjallverjar,
Nú fara að koma langþráðar og miklar breytingar á forsíðunni. Til stendur að breyta útliti og efnisinnihaldi nánast með öllu. En sýnið þolinmæði, allt tekur sinn tíma.
Allar reglur, met og aðrar upplýsingar verða á síðunni. Til stendur að hafa glæsilegt myndagallerí og eru öll framlög vel þegin. Einnig verður sett upp "Drivers Database" með upplýsingum um keppendur og keppnistæki (væri gaman að sjá hvernig það verður tekið í það)
Séu meðlimir klúbbsins og spjallverjar með uppástungur varðandi vefinn, þá endilega tjáið skoðun ykkar hérna á þessum þræði eða sendið email á einar@kvartmila.is
Mbk.
Einar K. Möller
maggifinn:
gott væri að komast á forsíðu með því að klikka á KK lógóið þegar maður er á efnisyfirliti spjallsins.
1965 Chevy II:
Og eyða linknum "til sölu/óskast keypt" á forsíðu ,því byrjendur smella þar á og pósta inn stundum óskast keypt sem lendir þá í "Til Sölu".
maggifinn:
--- Quote from: "Trans Am" ---Og eyða linknum "til sölu/óskast keypt" á forsíðu ,því byrjendur smella þar á og pósta inn stundum óskast keypt sem lendir þá í "Til Sölu".
--- End quote ---
Og setja kanski one post limit áður en hægt er að setja inn auglýsingu. Þá fækkar kannski aðeins í þessu kolaporti sem sá þráður er.
stigurh:
Einn ætti að heita bílar til sölu !
miðað við fjöldan af bílum sem er póstað.
stigurh
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version