Kvartmílan > Almennt Spjall
Amerískur "gullmoli" frá árinu 1956.
72 MACH 1:
Amerískur "gullmoli" frá árinu 1956 verður til sýnis hjá Krúsers-hópnum, Bíldshöfða 18, fimmtudagskvöldið 23.3.2006, kl. 20:00 - 23:00.
Upplifum bílastemmningu frá gullaldarárum amerísks bílaiðnaðar.
Bíllinn er nýkominn frá USA, og hefur ekki sést áður hérlendis.
Þetta er tækifæri sem enginn má missa af, þar sem þetta er alvöru-gull.
Með kveðju
Krúsers-hópurinn > þar sem rúnturinn er miðpunkturinn <
Aequitas:
það er ekki spurning að það sé góðæri á íslandi......svo margir að flyta inn gamla bíla :)
Moli:
ekki endilega góðæri, heldur líka það að þeir sem áttu þessa gömlu bíla um og uppúr 1980 eiga loksins pening til að kaupa djásnin sem þeim hefur lengi langað í nú þegar bílanir eru að detta í 40 ára, tollurinn er kominn í 13% og börnin loksins farin að heiman, og að ekki sé minnst á gráa fiðringinn! :lol:
Endilega sjá sem flesta annaðkvöld, heitt á könnunni, kók og prins fyrir klink, fínasta tónlist í djúkboxinu, tímarit og bækur í tugatali í hillunum að ekki sé minnst á alla spekingana sem gaman er að spjalla við! 8)
þetta á að sjálfsögðu líka við um meðlimi KK :lol:
Moli:
þetta er gripurinn! virkilega fallegur á að líta!
Moli:
meira
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version