Kvartmílan > Almennt Spjall
Keppnisflokkar næsta sumar
Marteinn:
TEDDI á hverju ert þú ?
fordfjarkinn:
Ökutækið sem ég fylgi er örlítið breitt Honda Del Sol sem Gunnar vinur minn Bjarnason á, rekur og keyrir í þessu tveggja manna teymi.
K.V. TEDDI.
Dr.aggi:
Misskyldi ég spurninguna?
Eða misskyldir þú hana Teddi
:lol: :lol: :lol: :twisted:
kv
dr.aggi
Dodge:
fordfjarki.
það hentar ekkert alltaf öllum að byrja smátt og svera sig upp.
ég tildæmis á engann bíl sem hentar til kvartmílu en hinsvegar á ég dusterskel sem verður alldrey bíll sem slíkur en getur auðveldlega orðið kvartmílutæki með slatta vinnu.. en þá er spurningin vill maður vera að halda í grindina eða smíða röragrind, halda kvalbaknum eða endurhugsa hann og færa relluna aftar. hvað á að halda í mykið af original gólfi eða többa almennilega. reyna að halda honum skoðunarhæfum eða láta allt flakka til að einfalda málið.
kannski er best að miða bara á seconduflokka þar sem allt sleppur inn, en svo veit maður ekkert hvað þeir lifa lengi.
en hinsvegar sé ég þetta ekki fara að gerast hjá mér alveg strax vegna tíma og peningaleisis. en ég vildi bara skjóta þessu fram svona til umhugsunar.
svo er lika eitt dæmi sem maður hefur af reynslu. þegar slikkarnir voru skyndilega leifðir í mc án nokkurrar viðvörunar þá fór bróðir minn suður að keppa og fékk ekkert að vita af þessu nema 2 dögum áður eða eitthvað svoleiðis, og var náttúrulega burstaður af mun aflminni bílum.
hann átti náttúrulega enga slikka til, en hefði getað átt þá ef þetta hefði verið samþykkt á aðalfundi eins og venja er fyrir.
en þetta er nú bara svona dæmisaga og enginn í fílu eða neitt svoleiðis, bara til umhugsunar.
fordfjarkinn:
HÆ BLEIKUR.
Ef þessi skel er þokkalega heil og allir boddy partar passa svona nokkurnvegin þá er bara að þrífa allan skít og drullu. létta eins og hægt er (kostar ekki mikið) .Mála flott (alveg merkilegt hvað hægt er að gera með pensli). Stól, stíri og mótor + drifbúnað = tilbúin á æfingarnar.
Nema þú sjáir hann fyrir þér sem æðislegan 1000 hp pro mod kagga,tímalaus og auralaus maðurinn. Maður sníður sér bara stakk eftir vexti. Það er hægt að gera þetta tímafregt og dírt eða einfalt og ódírt til að birja með.
Ég meinti nú ekki að það ætti endilega að birja á fjögra cyl bíl . heldur bara einhverju einföldu sem væri svo hægt að breita og betrum bæta með tíð og tíma og betri fjárhag. Maður verður að geta leikið sér samfara breitingum og vinnu.
Bara koma með gripinn á æfingar og hafa gaman af að standan flatan enn ekki bara stóra drauma og brenna út á öllu saman áður en nokkuð gerist.
KV. TEDDI draumóramaður með reynslu.
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version