Kvartmílan > Keppnishald / Úrslit og Reglur
Fundur um keppnismál komandi sumars.
Nóni:
Sælir félagar, nú er komin dagsetning á fundinn sem ég talaði um. Hann verður haldinn miðvikudaginn 18. janúar kl. 20:00 í íþróttahúsinu við Strandgötu (salnum uppi).
Vonumst eftir að fá umræður um það sem betur mætti fara og einnig það sem vel hefur verið gert, hvernig má fjölga keppendum, hvernig fjölga má starfsfólki og einnig áhorfendum.
Nú er um að gera að láta hausinn í bleyti (sumir setja hann í reyk) og koma fram með hugmyndir sem gætu gert gæfumuninn.
Ég vil taka fram að þessi fundur er ekki til að ræða um hvort skifta eigi um flokka eða þannig, hins vegar er mönnum velkomið að koma með vel ígrundaðar og rökstuddar tillögur.
Kv. Nóni
Racer:
Menn mega einnig hugsa hvort þeir eru tilbúnir að leggja sig að liði til að aðstoða uppá braut í sumar og svo aðrar sjálfboðavinnur.
nýjasta talning þá eru færri starfsmenn núna en í fyrra og hugsanlega er talan jafnmikill og seinni hluta 2004 sem sagt 3.
Jón Þór Bjarnason:
Ég er tilbúinn að gerast meðstjórnandi ef þess verður óskað og einnig skal ég fórna bílnum og aðstoða upp á braut svo fólk geti leikið sér. Allt fyrir klúbbinn. :D :D :D
Nóni:
--- Quote from: "Nonni_Z28" ---Ég er tilbúinn að gerast meðstjórnandi ef þess verður óskað og einnig skal ég fórna bílnum og aðstoða upp á braut svo fólk geti leikið sér. Allt fyrir klúbbinn. :D :D :D
--- End quote ---
Þetta er rétti andinn, meira svona strákar og stelpur. Takk fyrir Nonni, þú ert maðurinn.
Kv. Nóni
Formula 95':
Jæja vist þú segir stelpur þá er ég alveg til í að vera með í þessu öllu, þar sema ég er búinn að kaupa mér nýjan bíl Trans am með Lt4 :wink: þá held ég að maður ætti að vera með eithvað í kvartmíluni í sumar, þar sema það var eingin stelpa síðasta sumar :? þá verður að breita eithvað til næstkomandi sumar :lol:
EN hvernig var það þeir sema voru að vinna við Bílasíninguna áttu að fá timabilið 2006 frítt, það átti að senda kort til okkar allra en ekki svo ég viti hefur einginn af okkur fengið svona kort sema er frekar fúlt, er þetta ekkert að standast eða hvað??? :roll:
En VONANDI verður þetta gott sumar 8)
Kv:Dóra!
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version