Kvartmílan > Aðstoð
Mótorstilling
stefantb:
Hverjum hér í bæ (á höfuðborgarsvæðinu) er treystandi í að stilla 8cyl ameríska mótora með blöndung, mig vantar helst einhvern mjög góðan sem ræður við heitan ás og svoleiðis.(séní helst)
Mér hefur fundist þeir sem ég hef farið til og ég vil ekki nefna, ekki hafa staðið sig nógu vel.
Allar uppástungur vel þegnar.
jeppakall:
Björn Stefensen einhverstaðar uppá höfða s: 587 4955...hann er snillingur í 8cyl vélum, ég er með heitan ás í minni og hann gengur afbragðs fallega eftir hans meðhöndlun enda er hann af eldri gerðinni kallinn og þekkir því 8cyl vélar betur en þessar nýju hrísgrjónavélar þótt hann sé með alls kyns tölvudót líka með. Mæli eindregið með honum.
stefanniels:
Stefantb
Ég hef farið til Björns uppá höfða en það var því miður ekki að virka, hann fékk bílinn til að ganga voða vel en ekki til að vinna neytt af viti.
Skillst að Björn gamli eigi ekki verkstæðið lengur.??
Stefán Níels
Moli:
--- Quote from: "stefanniels" ---Stefantb
Ég hef farið til Björns uppá höfða en það var því miður ekki að virka, hann fékk bílinn til að ganga voða vel en ekki til að vinna neytt af viti.
Skillst að Björn gamli eigi ekki verkstæðið lengur.??
Stefán Níels
--- End quote ---
sæll, Björn Steffensen á verkstæðið ekki lengur, pabbi (Sigurður Magnússon) keypti reksturinn og nafnið á fyrirtækinu af honum fyrir rúmlega 2 árum eftir að hafa unnið hjá honum í rúmlega 30 ár. Gott að kallinn gat stillt gangin, en þetta er samt ekkert tjúningarverkstæði sem kallinn rekur! :lol:
stefanniels:
Þar sem við erum báðir að leita að einhverjum sem stillirtjúnaðar græjur er einhver sem tekur svon að sér.
Og fyrir mig þá er ég ekkert endilega að leita að einhverju verkstæði heldur alveg eins einhverjum heima í skúr sem hefur eitthvað vit á þessu.
kv Stefán
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version