Kvartmílan > Aðstoð

volvo

(1/2) > >>

óli spóli:
jæja þá er komið að því að ég er að spá í að taka volvoin í gegn og vantar smá visku frá bíla gúrúum og grunaði að þá væri að finna á þessu spjalli  :P

málin standa þannig að ég er með volvo 760, 6 cyl 2.8, mótorin heitir B28 eða B280 er ekki allveg viss, enn spurnign er sú hvað get ég gert fyrir þennna mótor sem er ekkert allt of dýrt en ætti samt að bæta einhverjum krafti í hann :D hann er ekki nema umm 160 hp núna enn langar að koma honum í 200 - 230,  

var að spá í að láta smíða á hann flækjur til að byrja með, hvað ætli það kosti og hvað gerir það ?   einhverjar fleiri hugmyndir til að auka kraftin án þess að breita of miklu  :?:

Jón Þór Bjarnason:
Í sambandi við flækjur er best að tala við helstu pústverkstæðin og ath hvað það kostar. Ég er enginn X8lX8 sérfræðingur en k&n sía er alltaf að gera eitthvað gagn með kraftinn. Gangi þér vel.

Gizmo:
Gleymdu þessu með að tjúna þessa V6 vél, rífðu þetta rusl úr honum og settu td 5 lítra Ford í hann ef þú vilt meira afl fyrir lítið fé, mun ódýrara og áhrifaríkara en að eiga við þessar Pusjó vélar.

Skoðaðu td þetta:
http://www.converseengineering.com/index.html

Blaze:
350 klárlega málið
http://www.jagsthatrun.com/Pages/Volvo_700_V-8.html

Gizmo:
Það sem mælir frekar með að nota Ford í Volvo er að kveikjan er að framan á Fordson, sem gerir að vélin kemst mun aftar í bílinn heldur en ef notað væri Chevy.

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

Go to full version