Author Topic: Jaguar XJ12 Sovereign  (Read 1723 times)

Offline zazou

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 15
    • View Profile
Jaguar XJ12 Sovereign
« on: October 15, 2005, 15:53:16 »


1989 módel, ekinn 197þ. km. Glæsilegur lúxusbíll í alla staði.  Bíllinn er tjónlaus fyrir utan þegar einhver nuddaði sér utan í hann (viðgert).  Hann er í góðu standi vélar- og drifbúnaðarlega, það sér vart á innréttingum en huga þarf að yfirboðsryði á boddíi.  Þessi bíll er vinsæll í brúðkaup.  

Reyklaus (aldrei verið reykt í honum)
Þjónustubók frá upphafi auk ítarlegs yfirlits þess sem hefur verið endurnýjað
15" "Pepperpot" álfelgur
Rafmagn er í rúðum
Rafmagn í speglum
Póleruð hnota í innréttingu (alvöru viður)
Beige-lituð Conelly leðuráklæði
Loftkæling
Sjálfskiptur
Eyðsla 20-22 lítrar innanbæjar
Aksturstölva
MP3 geislaspilari (Kenwood)
Þokuljós framan og aftan
Læst drif (Powr-lok)
Afturhjóladrifinn (2.88 )
0-100 uppgefið 8 sek.
Höfuðpúðar að aftan
Bein innspýting


Þessi bíll kom til landsins 1999 (ekinn ca 160þ.), fluttur inn af Patreki Jóhannessyni frá Þýskalandi.

Bíllinn hefur aldrei bilað á þeim rúmu 2 árum sem ég hef átt hann en ég hef látið skipta um m.a. bremsudiska, bremsuklossa og hjólalegur framan/aftan, kerti, ásamt mörgu smávægilegu svo sem kælivatnshosum.

Vélin er 5.3 lítra Jaguar 12 cylindra SOHC vél 60° ál vél sem er gefin upp 295 hö (217kw) og 433nm við 3250 snúninga með 12.5:1 þjöppu.

Verð 850þ. eða gott staðgreiðslutilboð.

Reynsluakstur og myndir blýfóts.

Það hefur ekkert verið sparað til í viðhaldi á þessum bíl, ef hann er ekki sá besti á landinu stefnir hann í það.  Nú er tækifæri ef þið vitið um einhvern sem langar í svona bíl.

Ég tók mér langan tíma í að kynna mér þessa bíla áður en ég keypti þennan og skrifaði meira að segja tvær greinar um þá.  Ef einhver hefur áhuga á að kynna sér efnið eru hér tengingar á greinarnar: XJ Series III og V12 vélin.



Nánari upplýsingar í þræði, PM eða brynjarm@yahoo.com
Brynjar
Jaguar XJ8
Daimler Double Six - Sold
Jaguar XJ12 - Sold
Vísitölubílar eru SATANS