Kvartmílan > Aðstoð
454
(1/1)
Þórir:
Sælir.
Nú ætlaði ég að athuga hvort þið hefðuð svör við einni spurningu. Þannig er mál með vexti að mig vantar að fá að vita hvort að kúplingshús af 350 Chevy passi aftan á 454, semsagt hvort boltamunstrið sé hið sama. Þá vantar mig einnig að fá að vita hvort svinghjól af ´92-´93 350 passi aftan á ´95 454.
Endilega ausið úr viskubrunnunum. :D
maggifinn:
kúplingshúsið passar en flexplötur og svinghjól passa ekki frá smallblock í bigblock
Þórir:
Ok.
Takk kærlega fyrir upplýsingarnar.
Kveðja
Þórir I.
eva racing:
Hæ.
Ekki að það sé í mínum verkahring að leiðrétta mér fróðari menn....
En gallinn við þetta (chevy sm/bbl.) er að svinghjólin passa á milli.
EN 454 er með spes ballanseringu í svinghjólinu, og MÁ þessvegna ekki notast af öðrum chevy vélum.
Afsakið afskiftasemina..(tek fram að ég held þetta)
Valur Vífilss...
Þórir:
--- Quote from: "eva racing" ---Hæ.
Ekki að það sé í mínum verkahring að leiðrétta mér fróðari menn....
En gallinn við þetta (chevy sm/bbl.) er að svinghjólin passa á milli.
EN 454 er með spes ballanseringu í svinghjólinu, og MÁ þessvegna ekki notast af öðrum chevy vélum.
Afsakið afskiftasemina..(tek fram að ég held þetta)
Valur Vífilss...
--- End quote ---
Ach so. Takk fyrir þetta Valur. Ert þú ekki einmitt orðinn aðkeyptur Chevy-kall? :oops:
Kveðja
Þórir I.
Navigation
[0] Message Index
Go to full version