Legg til að allir bílaáhugamenn sameinist um málstaðinn, þ.e.a.s. bíladelluna. Þetta var hinn skemmtilegast hittingur og vil ég hrósa þeim sem stóðu að fyrir framtakið. Þarna voru allrahanda bílar samankomnir bæði nýjir og gamlir og misjafnlega aflmiklir (eða afllitlir eftir því hvernig á það er litið). Við hljótum að geta sameinast um að betra sé að hér sé “frjálst” spjall og hverjum og einum leyfist að koma með sínar tilkynningar, umræður eða ábendingar. Þeir sem ekki hafa áhuga á viðkomandi spjalli setja bara inn annað spjall um það málefni sem þeim er hugleikið.
Svenni