Bílahittingur á Bíldshöfða 18 í “ porti “ fimmtudaginn 11.08. kl 20:30
Frumsýning á 1966 Ford Mustang. Þessi er búinn að vera í uppgerð nokkuð lengi. Hann er ekki alveg tilbúinn en vel sýningarhæfur.
Veðurspáin er góð fyrir fimmtudaginn og von á yfir 40 bílum.
Eftir tæpan hálfan mánuð kemur síðan 1958 Dodge Custom Royal með 356 Poly Hemi. Hann kom til landsins í vor og var honum skutlað beint inn í skúr þar sem hann hefur staðið síðan. Tími til kominn að setja í gang og hreyfa tækið. Þó fyrr hefði verið.......
Kveðja,
Eggert Kristjánsson.