Kvartmílan > Almennt Spjall
hvítur cammi í kóp !! ?? ... (áður svartur/hvítur í hfj)
siggik:
EDIT 2 :: þá er ég að leita að eiganda að þessum hvíta Z28 með rifflaða húddinu og beinskipta á álfhólsvegi 43a í kóp, einhver veit um hann ? hann er fluttur úr húsinu nebbla :/
Það er svartur Z28 camaro 3gen í hfj, rétt hjá ostahúsinu númerslaus, hver á hann og er hann til sölu og kannski smá info um hann ?
svo ein önnur spurning, ég er með impreza 98 2.0 og þegar ég er komin á sona 110+ þá byrjar stýrið að titra smá ekkert rosa en ég held að hann egi nú ekki að gera þetta, eru ekki einhver gúmmi eða drasl sem slitna þegar svona gerist .. any hints ?
takk fyrir
ps. ef þið vitið um einhverja svona 3gen bíla til sölu fyrir sirka 300k eða 1g eclipse GS+pening þá megið þig pósta því hér.
EDIT: fann 1 hvítann inní garði í hfj, númerslaus, hvítur með t top og á nokkuð littlum dekkjum, aðeins ryð fyrir ofan 1 hjólaskálina og smá opin/skökk farþega hurðin, einhverjar upplisýngar um þennan og er hann falur ?
Ziggi:
Félagi minn var að spá í Camaroinn hjá slippnum í hfj og við hringdum í strákinn sem á hann og hann ætlar að gera bílinn upp áður en hann selur hann.
Gísli Camaro:
titringurinn getur verið svo margt. ballance blý dottið af,drulla í felgu, Vírslitið dekk, beygluð felga, ónýtur stýrisendi, spyrnugúmmi, spyndilkúla og margt fleyra. bara smella bílnum á lyftu og yfirfara.
komrad:
þennan djöfull á ég
það er 350 sbc í honum með 600 edelbrock blandara, accel bel 2 kveikja+magnari 8mm msd þræðir, Rpm performance ál millihedd .beinskiptur fimmgíra ,allur svartur innan sem utan, svart leður keyðuru 68þ mílur .
ég veit ekki hver hlutföllin eru í honum ,
framan 225/60
aftan 245/60
Hestar=unknown
það eina sem er að honum er að ég er ekki buinn að tengja kveikju magnararn ,ég sett nýjar undirlyftur í hann og kveikju+magnaran áður en ég lagði honum í vetur en er ekki buinn að ná honum í gang, held að magnari sé bilaður þarf að koma honum inn og kíkja betur á þetta, um leið og ég kemst með hann inn þá byrja ég að gera hann upp,(er buinn að fá leið á því að vinna í honum utandyra)
það kom nú til mín um daginn maður sem flutti hann til landsins 91 og sagði mér að hann hafði sett í hann 350 vettu vél og stillanlega demparar og að hann hafi verið svartur með gyllta rönd allan hringin á svuntu og sílsalistum
Ég keypti bílinn 2002 á akureyri og fékk ég lítið að vita um söguna á honum þanning að ef eitthver hefur eitthverja vittneskju um sögu hans þá má hann endilega skrifa það hérna og eða hefur eitthverjar myndir af honum mj-594 ,ég á bara eina sem er sýnigar hæf
Ingi Turbo:
sæll hefuru áhuga á talon tsi (eclipse gsx) ´1993?
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version